15.05.16 - 21:52
Alexander Freyr Tamimi
Blikar lána Gísla Eyjólfs til Ólafsvíkur (Staðfest)

Gísli Eyjólfsson í leik gegn Víkingi Ó.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Gísli Eyjólfsson í leik gegn Víkingi Ó.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Gísli Eyjólfsson, leikmaður Breiðabliks, hefur verið lánaður til Víkings Ólafsvíkur. Þetta staðfesti Breiðablik á heimasíðu sinni.
Gísli er fæddur árið 1994 og er samningsbundinn Blikum til ársins 2018. Hann spilaði sem lánsmaður hjá Haukum árið 2014 en var meiddur framan af Íslandsmóti í fyrra. Hann kom þó inn í hópinn hjá Blikum seinni hluta tímabilsins og var t.a.m. í byrjunarliðinu í lokaleiknum gegn Fjölni.

Víkingur Ólafsvík er nýliði í Pepsi-deildinni og er með sjö stig eftir fyrstu þrjá leiki sína. Liðið vann einmitt 2-1 sigur gegn Breiðabliki í fyrstu umferð deildarinnar.
hlakka til að sjá best geymda leyndarmál pepsi springa út með ólsurum
— Elfar Freyr Helgason (@elffhel) May 15, 2016