Fotbolti.net
15.05.16 - 16:08
Elvar Geir Magnússon

ÍA fær Iain Williamson lánaðan (Staðfest)

Iain Williamson er kominn á Skagann.

Iain Williamson er kominn á Skagann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Reykjavík hefur lánað skoska miðjumanninn Iain Williamson til ÍA. Þessi 28 ára leikmaður hefur leikið með Grindavík, Val og Víkiingum hér á landi.

Í heimalandinu hefur hann leikið fyrir Dunfermline og Raith Rovers.
Á heimasíðu ÍA kemur fram að Arnar Már Guðjónsson, miðjumaður liðsins, hafi meiðst í sigurleiknum gegn Fjölni í síðustu viku en auk hans hefur Hallur Flosason átt við meiðsli að stríða og það sé ástæðan fyrir því að félagið gekk frá samningum um Williamson.

„Iain verður góð viðbót í leikmannahóp ÍA og væntum við mikils af honum,\" segir á heimasíðu ÍA en liðið er með þrjú stig eftir þrjár umferðir í Pepsi-deildinni.

Iain mætir á sína fyrstu æfingu með ÍA í dag og á að vera kominn með leikheimild með ÍA fyrir útileik gegn Víkingi Ólafsvík á morgun.

Hann gekk í raðir Víkings R. í desember síðastliðnum en hefur ekki náð að vinna sér inn byrjunarliðssæti í Fossvoginum.

mánudagur 16. maí
17:00 Fylkir-ÍBV (Floridana völlurinn)
19:15 FH-Fjölnir (Kaplakrikavöllur)
20:00 Víkingur Ó.-ÍA (Ólafsvíkurvöllur)

þriðjudagur 17. maí>
19:15 Víkingur R.-Valur (Víkingsvöllur)
19:15 Þróttur R.-Breiðablik (Þróttarvöllur)
20:00 KR-Stjarnan (Alvogenvöllurinn)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.