Fotbolti.net
15.05.16 - 23:49
Alexander Freyr Tamimi

Þóra B. Helgadóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Þóra lék síðast með Fylki.

Þóra lék síðast með Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Þóra B. Helgadóttir, fyrrum landsliðsmarkvörður, er gengin í raðir Stjörnunnar og mun hún starfa þar sem markmannsþjálfari.

Þóra fékk jafnframt félagaskipti til Stjörnunnar en að sögn Einars Páls Tamimi, formanns meistaraflokksráðs kvenna hjá félaginu, er hún hugsuð sem markvörður til þrautarvara ef mikil meiðslavandræði koma upp á.
Þóra, sem er fædd 1981 hefur spilað Í Noregi, Svíþjóð, Belgíu og Ástralíu en með Breiðablik, KR og Fylki hér heima. Hún hefur spilað 108 A-landsleiki og 44 leiki með yngri landsliðum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.