15.05.16 - 18:32
Elvar Geir Magnússon
Þróttur fær reynslumikinn enskan framherja (Staðfest)

Dean Morgan í leik með Wycombe.

Mynd: Getty Images

Dean Morgan í leik með Wycombe.

Mynd: Getty Images
Þróttur notaði tækifærið á síðasta degi félagaskiptagluggans og krækti sér í enska framherjann Dean Morgan, sem hefur undirritað samning út tímabilið.
Dean er 32 ára gamall og kemur til Þróttar frá Newport County. Hann á að baki 16 ára feril sem atvinnumaður og hefur spilað yfir 440 leiki með liðum á borð við Reading, Luton, Crewe Alexandra, MK Dons, Aldershot, Chesterfield, Oxford United, Southend og Wycombe Wanderers
Dean á sömuleiðis að baki nokkra leiki með landsliði karabíska eyríkisins Montserrat, en hann er gjaldgengur þar gegnum móður sína sem er þaðan.
„Það var mjög mikilvægt að styrkja sóknarlínu okkar í kjölfarið á meiðslum Emils Atlasonar, sem spilar ekki meira í sumar. Stjórn knattspyrnudeildar á skilið mikið lof fyrir að bregðast hratt við því áfalli. Dean Morgan kom til landsins fyrr í dag og lítur vel út. Ef allt gengur upp, þá mun hann spila fyrir okkur strax í næsta leik. Ég er hæstánægður með að hafa krækt í þennan gæðaleikmann. Hann er snjall, leikinn, þaulreyndur og verður frábær viðbót við okkar góða hóp,“ segir Gregg Ryder þjálfari Þróttar í tilkynningu frá félaginu.
Dean Morgan er spenntur fyrir því að spila á Íslandi.
„Þetta verður skemmtilegt ævintýri. Ég hef þegar fengið útsýnistúr um Laugardal og skil vel að hann sé kallaður hjartað í Reykjavík. Ég er alinn upp í Tottenham-hverfinu í London og umhverfið þar er ekki ósvipað. Hlakka til þess að æfa og keppa með Þrótti. Er staðráðinn í að leggja mitt af mörkum til að taka þetta félag áfram og upp. Það verður líka gaman að eignast nýja vini og mikil tilhlökkun að hitta minn gamla liðsfélaga frá Wycombe Wanderers, Sebastian Svard. Ég spilaði enn fremur með Ívari Ingimarssyni hjá Reading, þannig að ég þekki aðeins til Íslands,“ segir Dean Morgan.
Þróttarar eru með eitt stig eftir þrjár umferðir í Pepsi-deildinni en liðið steinlá 6-0 fyrir Stjörnunni í síðustu umferð. Í þeim leik meiddist þeirra helsti sóknarmaður, Emil Atla, illa. Þróttur fær Breiðablik í heimsókn á þriðjudaginn og verður Morgan frumsýndur í þeim leik.