Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. maí 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Championship í dag - Allt eða ekkert á Elland Road
Mynd: Getty Images
Leeds United tekur á móti Derby County í kvöld þar sem allt er undir hjá báðum liðum. Þau mætast í undanúrslitaleik umspilsins um að komast upp í ensku úrvalsdeildina.

Heimamenn í Leeds eru í góðri stöðu eftir 0-1 sigur í fyrri leiknum. Liðið sem sigrar í kvöld mætir Aston Villa í hreinum úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Kemar Roofe gerði sigurmarkið í fyrri leiknum og hefur skorað fjögur mörk í þremur leikjum gegn Derby á tímabilinu. Hann verður ekki með vegna minniháttar meiðsla.

Frank Lampard hefur kallað eftir því að þeir leikmenn sem eru hjá Derby á lánssamningum nýti þetta tækifæri til að skína og sanna fyrir heiminum að þeir eigi heima í efstu deild.

Leikur kvöldsins:
18:45 Leeds - Derby (1-0) (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner
banner