Gísli Ofurbikarmeistari í Póllandi - Kolbeinn lagði upp í stórsigri

Gísli bætir við bikarsafnið

Mynd: EPA

Kolbeinn lagði upp mark er Vålerenga fór illa með Álasund

Mynd: Valerenga

Gísli bætir við bikarsafnið

Mynd: EPA
Gísli Gottskálk Þórðarson og félagar hans í Lech Poznan eru pólskir Ofurbikarbikarmeistararar eftir að hafa unnið 3-1 sigur á Gornik Zabrze í kvöld.
Poznan varð pólskur meistari á síðasta tímabili en tapaði úrslitaleik bikarkeppninnar gegn Zabrze og átti því harma að hefna þegar liðin mættust í kvöld.
Poznan lenti undir en svaraði með þremur mörkum og vann 3-1 sigur. Gísli Gottskálk kom inn á sem varamaður skömmu eftir þriðja markið og hjálpaði sínum mönnum að loka leiknum.
Poznan mætir næst AGF í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu 21. júlí.
AGF lék einmitt æfingaleik gegn Horsens í gær og vann 2-0 sigur. Mikael Neville Anderson skoraði úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.
Tómas Óli Kristjánsson kom inn af bekknum í hálfleik hjá AGF en Guðlaugur Victor Pálsson var í liði Horsens.
Kolbeinn Birgir Finnsson lagði upp sjötta mark Vålerenga í 6-1 stórsigri gegn Álasundi í norsku úrvalsdeildinni.
Fyrrverandi leikmaður Fylkis lék allan leikinn og lagði upp lokamarkið fyrir Mohamed Ofkir. Ólafur Guðmundsson byrjaði hjá Álasundi en Davíð Snær Jóhannsson var fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Valerenga er í áttunda sæti með 17 stig en Alesund situr í 14. sæti með tólf stig.
Rúnar Alex Rúnarsson stóð vaktina í marki FCK sem marði 2-1 sigur gegn Viborg. Hann hefur verið aðalmarkvörður liðsins á undirbúningstímabilinu og má gera ráð fyrir að hann verði á milli stanganna þegar FCK mætir Polissya Zhytomyr í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar 23. júlí.
Davíð Kristján Ólafsson lék fyrri hálfleikinn með Polonia Warszawa sem tapaði 2-0 gegn Ziln í æfingaleik.
Þetta var næstsíðasti æfingaleikur liðsins á undirbúningstímabilinu en keppni í pólsku B-deildinni hefst 26. júlí.