Ánægður í Garðabænum
Guðmundur Steinn Hafsteinsson kom inn af bekknum þegar Stjarnan vann sigur á Víkingum í rússíbanaleik í kvöld.
„Víkingar voru sprækir í leiknum og þetta var fram og til baka, opinn leikur," sagði Guðmundur Steinn sem hrósaði Víkingsliðinu.
„Víkingar voru sprækir í leiknum og þetta var fram og til baka, opinn leikur," sagði Guðmundur Steinn sem hrósaði Víkingsliðinu.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 4 Stjarnan
Hann hefur mikið verið í umræðunni síðustu tvo daga en sagt er að Valsmenn hafi boðið Stjörnunni að fá Gary Martin í skiptum fyrir hann. Garðbæingar neituðu því tilboði.
Hvað hefur Guðmundur Steinn um málið að segja?
„Mest lítið. Þetta er bara mest eitthvað sem maður hefur lesið. Ég er mjög ánægður í Garðabænum. Það er áhugavert hvernig þetta hefur þróast en það er ekkert sem snertir mig beint. Þetta hefur verið mjög undarlegt."
Athugasemdir