Fotbolti.net
15.05.21 - 16:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Southampton sigraði Fulham

Che Adams kom Southampton yfir

Che Adams kom Southampton yfir

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Southampton 3 - 1 Fulham</b>
1-0 Che Adams ('27 )
2-0 Nathan Tella ('60 )
2-1 Fabio Carvalho ('75 )
3-1 Theo Walcott ('82 )
Fulham heimsótti Southampton á St. Mary's í ensku úrvalsdeildinni í dag. Southampton vann öruggan 3-1 sigur.

Che Adams skoraði eina mark fyrri hálfleiks eftir tæpan hálftíma leik. Nathan Tella bætti öðru markinu við áður en hinn ungi Fabio Carvalho skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fulham. Theo Walcott skoraði síðasta mark leiksins þegar tæpar 10 mínútur voru eftir.

Southampton sigla lignan sjó í 13.sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir en Fulham var þegar fallið í næst efstu deild fyrir leikinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.