Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 15. maí 2021 17:00
Victor Pálsson
„Hver selur leikmann sem skorar 60 mörk á ári?"
Mynd: Getty Images
Það eru engar líkur á að Bayern Munchen muni selja Robert Lewandowski í sumar eins og sumir hafa greint frá.

Lewandowski hefur verið orðaður við brottför síðustu daga en Pólverjinn er mögulega mikilvægasti leikmaður þýska liðsins.

Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern, ræddi við blaðamenn um framtíð leikmannsins í kjölfarið.

Það kemur ekki til greina fyrir Bayern að selja Lewandowski sem er 32 ára gamall en er enn einn besti framherji heims.

Lewandowski nálgast 40 mörk í Bundesligunni á þessu tímabili en hann hefur skorað heil 39 mörk sem er ótrúlegur árangur.

„Auðvitað verður hann áfram. Hver selur leikmann sem skorar 60 mörk á hverju ári?" sagði Rummenigge við Sport1.
Athugasemdir
banner
banner
banner