Fotbolti.net
15.06.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Rene Girard ráðinn þjálfari Lille (Staðfest)

Rene Girard

Rene Girard

Canon

Mynd: Getty Images

Franska stórliðið Lille hefur ráðið Rene Girard sem þjálfara liðsins næstu tvö árin, en hann kemur frá Montpellier.
Girard þjálfaði Montpellier í fjögur ár, en á síðasta ári vann hann fyrsta deildartitil liðsins í sögu félagsins.

Rudi Garcia hætti með Lille á dögunum til þess að taka við ítalska úrvalsdeildarliðinu AS Roma, en franska félagið hefur fundið arftaka hans.

Girard tekur við liðinu og mun þjálfa það næstu tvö árin, en Michel Seyoux, forseti félagsins, fagnar því.

,,Ég þekkti hann sem þjálfara og fyrir afrek hans. Ég er stoltur og ánægður með að Rene hafi ákveðið að taka við liðinu,\" sagði Seydoux.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.