15.06.14 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Þýskalands og Portúgal

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Fyrsti leikur morgundagsins á HM-hátíðinni flokkast svo sannarlega sem dýrari týpan.
Þýskaland og Portúgal eigast við í Salvador klukkan 16:00 í beinni á RÚV.

Cristiano Ronaldo hefur verið í meiðslaveseni að undanförnu og hefur ekki náð að klára æfingar í kjölfar leiksins.
Spurning er hvort þessi besti leikmaður heims muni byrja leikinn sem fyrirfram er úrslitaleikur um efsta sæti G-riðils.
Philipp Lahm mun líklega byrja á miðju þýska liðsins þar sem Bastian Schweinsteiger og Sami Khedira eru tæpir.
Toni Kroos er pottþétt í byrjunarliðinu enda í miklu uppáhaldi hjá Joachim Löw þjálfara.
Reiknað er með því að Lukas Podolski muni byrja á vængnum en hægt er að setja (Staðfest) sviga við að Miroslav Klose verður ekki í fremstu víglínu.
Löw hefur þegar sagt að Thomas Muller muni leiða sóknarlínuna.

Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.

Mynd: Líkleg byrjunarlið Goal.com