Fotbolti.net
15.06.16 - 21:28
Ívan Guðjón Baldursson

Tite nýr landsliðsþjálfari Brasilíu (Staðfest)

Tite nýr landsliðsþjálfari Brasilíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tite hefur verið ráðinn sem nýr landsliðsþjálfari Brasilíu eftir að Dunga var rekinn.

Dunga var látinn taka pokann sinn eftir slaka frammistöðu Brasillíu á Copa America þar sem liðið féll úr keppni eftir jafntefli gegn Ekvador og tap gegn Perú.
„Tite er hættur störfum hjá Corinthians, hann samþykkti samningstilboð frá brasilíska knattspyrnusambandinu,\" sagði Roberto Andrade, forseti Corinthians.

Tite er 55 ára gamall og hefur gert mjög góða hluti við stjórnvölinn hjá Corinthians, en árið 2012 tókst honum að vinna HM félagsliða eftir úrslitaleik gegn sterku liði Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.