Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 15. júní 2019 15:06
Arnar Daði Arnarsson
Byrjunarlið Vals og ÍBV: Anton Ari og Kristinn Freyr byrja
Anton Ari er í marki Vals í dag.
Anton Ari er í marki Vals í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8. umferðin í Pepsi Max-deild karla heldur áfram í dag með þremur leikjum. Einn af leikjunum er leikur Vals og ÍBV sem fram fer á Origo-vellinum klukkan 16:00.

Um er að ræða fallbaráttuslag tveggja neðsta liðanna í deildinni. Heimamenn í Val sitja á botni deildarinnar með fjögur stig á meðan ÍBV er í 11. sætinu með fimm stig.

Sindri Björnsson er ekki í leikmannahópi Vals eftir að hafa verið í byrjunarliðinu gegn Stjörnunni í síðutu umferð. Inn í byrjunarliðið kemur Kristinn Freyr sem tók út leikbann í síðustu umferð.

Halldór Páll kemur í markið hjá ÍBV og þá kemur Evariste Ngolok inn í byrjunarliðið ásamt Felix Erni. Diogo Coelho tekur út leikbann hjá ÍBV og þá er Telmo Ferreira Castanheira ekki með Eyjamönnum í dag.

Beinar textalýsingar:
16:00 Valur - ÍBV
16:00 ÍA - KR
17:00 KA - Grindavík

Byrjunarlið Vals:
33. Anton Ari Einarsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
6. Sebastian Hedlund
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
17. Andri Adolphsson
19. Lasse Petry
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
71. Ólafur Karl Finsen

Byrjunarlið ÍBV:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
7. Evariste Ngolok
8. Priestley Griffiths
9. Breki Ómarsson
17. Jonathan Glenn
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson
26. Felix Örn Friðriksson
38. Víðir Þorvarðarson (f)
73. Gilson Correia
77. Jonathan Franks
Athugasemdir
banner
banner
banner