Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 15. júní 2019 15:30
Oddur Stefánsson
Heimild: 101 Great Goals  
West Ham á eftir Maxi Gomez
Mynd: Getty Images
West Ham hefur verið mikið orðað við Maxi Gomez sóknarmann Celta Vigo.

Úrugvæinn ungi sem hefur verið frábær hjá Celta Vigo er með 43 milljón punda losunarákvæði í samningnum sínum.

Bæði West Ham og Valencia hafa boðið 29 milljón punda í leikmanninn og greinir Sky frá því að nú þarf félagið að ákveða hvert hann muni fara.

Maxi Gomez hefur leikið 70 leiki með Celta Vigo í deildinni og hefur skorað 30 og lagt upp níu.

West Ham er að leita sér sóknarmanni þar sem mikil óvissa er í kringum stöðu Marko Arnautovic hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner