Fotbolti.net
15.06.20 - 22:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stefan Ljubicic í HK (Staðfest)

Stefan Ljubicic í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefan Alexander Ljubicic er að ganga í raðir HK. Greint var frá þessu á Stöð 2 Sport í kvöld.

Stefan sagði á dögunum skilið við FC Riga í Lettlandi Guðmundur Benediktsson og Hjörvar Hafliðason ræddu skiptin í þættinum Pepsi Max Stúkan. Áður hafði verið rætt um meiðsli hjá HK en framherjinn Bjarni Gunnarsson virtist togna í gær gegn FH.
„Þú varst að kvarta yfir því að HK hefði lítið gert á leikmannamarkaðnum Hjörvar. Þeir bregðast strax við," Sagði Guðmundur Benediktsson.

„Það var verið að kaupa sóknarmann á meðan ég var að rífa kjaft. Strákur sem sló í gegn með Grindavík í fyrra og var í ungingaakademíu Brighton. Menn segja pottþétt 10-15 mörk í sumar," sagði Hjörvar Hafliðason.

HK staðfesti í kjölfarið félagaskiptin þegar Fótbolti.net spurðist fyrir um þau.

Stefan skoraði eitt mark í átta leikjum í Pepsi Max-deildinni í fyrra. Hann hafði áður leikið samtals fjóra leiki með Keflavík sumrin 2015 og 2016.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.