Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 15. júní 2021 10:08
Brynjar Ingi Erluson
Laporte: Morata mun skora þrjú í næsta leik og gera alla kjaftstopp
Aymeric Laporte
Aymeric Laporte
Mynd: EPA
Aymeric Laporte, varnarmaður spænska landsliðsins, kom Alvaro Morata til varnar eftir markalausa jafnteflið gegn Svíþjóð í gær en Morata náði aldrei að finna sig í leiknum.

Morata fékk nokkur góð færi og eitt dauðafæri í fyrri hálfleik en náði ekki að gera sér mat úr því.

Sóknarlína spænska liðsins var gagnrýnd fyrir að ná ekki að skora gegn djúpri vörn Svía en Laporte hefur þó engar áhyggjur af Morata.

„Þú getur ekki efast framherja eins og Alvaro. Hann hefur þegar sýnt hvað hann hefur fram að færa," sagði Laporte.

„Næst mun hann skora þrjú mörk og gera alla kjaftstopp," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner