Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. júní 2022 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forest í viðræður við Manchester United
Henderson
Henderson
Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur áhuga á því að fá Dean Henderson í sínar raðir. Henderson er markmaður Manchester United en var í algjöru varahlutverki þar sem David de Gea varði mark liðsins.

Það er félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano sem greinir frá þessu.

Romano segir að Forest vilji fá Henderson á láni með möguleika á að geta keypt enska markmanninn á um 20 milljónir punda í framhaldinu.

Henderson er 25 ára gamall og er uppalinn hjá Carlisle og Manchester United. Hann á að baki einn landsleik og 29 keppnisleiki fyrir Man Utd.

Í vetur var James Garner á láni hjá Forest frá United.


Athugasemdir
banner
banner
banner