Heimir Hallgrímsson, fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins, er á tréverkinu hjá ÍBV sem spilar við Víking á Hásteinsvelli í þessum skrifuðu orðum.
Eyjamaðurinn er án starfs sem stendur eftir að hafa hætt með Al Arabi.
Heimir þjálfaði bæði karla- og kvennalið ÍBV áður en hann varð aðstoðarmaður Lars Lagerbäck hjá karlalandsliðinu. Hann þjálfaði landsliðið með Lars til 2016 áður en hann tók alfarið við keflinu.
Hann var orðaður sterklega við Val í síðasta mánuði en vísaði þeim sögusögnum til föðurhúsanna. Nú er hann mættur á skýrslu hjá Eyjamönnum og virðist ætla að aðstoða Hermann Hreiðarsson í sumar.
Guðmundur Benediktsson hjá Stöð 2 Sport vekur athygli á þessu á Twitter og grínast þá með umræðuna í kringum þjálfarastarfið hjá Val í leiðinni.
„Hættur í Val?" spyr Guðmundur og birtir mynd af skýrslu Eyjamanna.
Hættur í Val? pic.twitter.com/8Qpa2D0BtE
— Gummi Ben (@GummiBen) June 15, 2022
Athugasemdir