Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
   lau 15. júní 2024 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
5. deild: Álafoss og Smári í sitthvort toppsætið
Mynd: Raggi Óla
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Flest lið í 5. deildinni eru búin að spila 6 umferðir á tímabilinu, en fjórir leikir fóru fram í dag þar sem Álafoss og Smári komust í sitthvort toppsætið.

Álafoss komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik á heimavelli gegn Samherjum, þar sem Davíð Ívarsson og Alexander Aron Davorsson sáu um markaskorunina.

Samherjar minnkuðu muninn í tvígang í síðari hálfleik en Reginald Owusu Afriyie gerði sigurmark heimamanna inn á milli.

Lokatölur urðu 3-2 fyrir Álafossi, sem er á toppi A-riðils með 16 stig eftir 6 umferðir. Álafoss er einu stigi fyrir ofan Hafnir í toppbaráttunni, en Hafnir eiga leik til góða.

Svipaða sögu er að segja frá sigri Smára sem tók á móti Herði frá Ísafirði, en staðan var markalaus í leikhlé er liðin mættust í Fagralundi.

Birkir Eydal tók forystuna fyrir Ísfirðinga í upphafi síðari hálfleiks, en Kristján Gunnarsson jafnaði skömmu síðar áður en Alexander Fannberg Gunnarsson tók til sinna mála.

Staðan var 1-1 eftir jöfnunarmark Kristjáns, en Alexander Fannberg skoraði tvö mörk á stuttum kafla til að koma Smára í tveggja marka forystu.

Meira var ekki skorað og er niðurstaðan sú að Smári nældi sér í dýrmæt stig til að taka toppsæti B-riðils af Mídas.

Smári er þar með 16 stig eftir 6 umferðir, einu stigi fyrir ofan Mídas.

A-riðill:
Álafoss 3 - 2 Samherjar
1-0 Davíð Ívarsson ('4 )
2-0 Alexander Aron Davorsson ('26 )
2-1 Eggert Rafn Einarsson ('69 )
3-1 Reginald Owusu Afriyie ('71 )
3-2 Sigurður Donys Sigurðsson ('89 , Mark úr víti)
Rautt spjald: Valgeir Viðar Jakobsson, Álafoss ('58)
Rautt spjald: Alexis Alexandrenne, Samherjar ('90)

Spyrnir 5 - 1 Léttir
1-0 Jakob Jóel Þórarinsson ('21 , Mark úr víti)
2-0 Ármann Davíðsson ('36 )
3-0 Almar Aðalsteinsson ('56 )
4-0 Almar Aðalsteinsson ('65 )
4-1 Axel Snær Orongan ('69 )
5-1 Óliver Árni Ólafsson ('71 )

B-riðill:
Smári 3 - 1 Hörður Í.
0-1 Birkir Eydal ('52 )
1-1 Kristján Gunnarsson ('61 )
2-1 Alexander Fannberg Gunnarsson ('74 )
3-1 Alexander Fannberg Gunnarsson ('78 )

Reynir H. 1 - 1 Uppsveitir
0-1 Daníel Ben Daníelsson ('91 )
1-1 Bárður Jóhönnuson ('96 )
Rautt spjald: Steinar Benóný Gunnbjörnsson, Uppsveitir ('55)
Rautt spjald: Benedikt Osterhammer Gunnarsson, Reynir H. ('93)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner