Fotbolti.net
15.07.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Guðrún Anna Atladóttir í FH (Staðfest)

Guðrún Anna Atladóttir í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Slava Titov

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Guðrún Anna Atladóttir er gengin í raðir FH og fékk félagaskipti með liðinu á miðnætti þegar félagaskiptaglugginn opnaði.
Guðrún Anna sem er 24 ára gömlu kemur til FH frá HK/Víkingi þar sem hún spilaði fyrstu tvo leikina í Pepsi-deild kvenna í sumar áður en Nicole McClure kom til félagsins.

FH hefur verið að leita að markverði til að veita Nönnu Rut Jónsdóttur samkeppni.

Félagið fékk Birnu Berg Haraldsdóttur til að taka fram skóna í tveimur leikjum í maí áður en hún hætti í fótbolta til að einbeita sér að atvinnumannaferli í handbolta.

Guðrún Anna hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 með HK/Víkingi er hún spilaði þrjá leiki í deild og bikar og svo sex leiki árið á eftir.

Hún fór til Fylkis árið 2008 og spilaði þar sex leiki í deild og bikar en fór svo til KR árið þar á eftir.

Hún sneri aftur til HK/Víkings sumarið 2010.

Samtals hefur hún leikið 51 leik á meistaraflokksferli sínum í deild og bikar.

FH er í 7. sæti Pepsi-deildar kvenna með 11 stig úr fyrstu níu umferðunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.