Fotbolti.net
15.07.13 - 13:29
Magnús Már Einarsson

Ingólfur Sigurðsson í Þrótt (Staðfest)

Ingólfur Sigurðsson í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur hefur fengið Ingólf Sigurðsson til liðs við sig á láni frá Val en samningurinn gildir út tímabilið.

Jón Kaldal, formaður knattspyrnudeildar Þróttar, staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Við væntum mikils af Ingólfi. Hann fer í treyju númer 10 hjá okkur,\" sagði Jón við Fótbolta.net.

Ingólfur getur leikið sinn fyrsta leik með Þrótti annað kvöld þegar liðið mætir Víkingi R.

Ingólfur var nálægt því að ganga til liðs við KV rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í maí.

Ekkert varð af félagaskiptum þá en Ingólfur hefur ekkert komið við sögu hjá Val í Pepsi-deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.