Fotbolti.net
15.07.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Olga Hansen til ÍR (Staðfest)

Olga í leik með KR.

Olga í leik með KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Færeyingurinn Olga Kristina Hansen er gengin til liðs við lið ÍR sem leikur í 1. deild kvenna.

Olga hefur leikið undanfarin ár hér á landi en hefur verið í Danmörku það sem af er árinu. Hún fær leikheimild með ÍR í dag þegar félagaskiptaglugginn opnar.
Olga kom hingað til lands árið 2011 til að spila fyrir Álftanes og spilaði tíu leiki og skoraði eitt mark í 1. deildinni áður en KR fékk hana til sín á miðju tímabili það ár.

Hún spilaði áfram með KR í Pepsi-deildinni í fyrra áður en hún fór til Danmerkur í vetur.

Hún spilaði 24 leiki með KR á einu og hálfu tímabili og skoraði tvö mörk.

ÍR er í sjöunda sæti 1. deildar kvenna með sex stig úr fyrstu níu leikjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.