Fotbolti.net
15.07.13 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Richard Dunne til QPR (Staðfest)

Richard Dunne til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur gert eins árs samning við írska varnarmanninn Richard Dunne.

Dunne kemur frítt til QPR en samningur hans við Aston Villa rann út á dögunum.

Dunne er annar leikmaðurinn sem QPR krækir í nú í sumar á eftir Danny Simpson.
,,Ég hef nokkrum sinnum verið nálægt því að skrifa undir hjá Harry (Redknapp) og tækifærið að vinna með honum heillaði mig,\" sagði Dunne.

Dunne er 34 ára gamall en hann á að baki 77 leiki með landsliði Írlands.

Heimild: Heimasíða QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.