Fotbolti.net
15.07.13 - 12:24
Magnús Már Einarsson

Spænskur markvörður í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Spænskur markvörður í Víking Ólafsvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Víkingur Ólafsvík hefur samið við spænska markvörðinn Sergio Lloves Ferreiro.

Sergio er fæddur 1987 en hann lék með Pontevedra í spænsku D-deildinni á síðasta tímabili.

Sergio á að fylla skarð Kaspars Ikstens sem fór aftur heim til Lettlands á dögunum eftir að hafa verið varamarkvörður á eftir Einari Hjörleifssyni í síðustu leikjum.
Fyrr í mánuðinum samdi Víkingur við tvo aðra Spánverja, þá Antoni Espinosa Mossi og Samuel Jimenez Hernandes.

Leikmennirnir verða ekki með Ólafsvíkingum gegn Val í kvöld en þeir verða komnir með leikheimild þegar liðið mætir Fram næstkomandi sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.