Fotbolti.net
15.07.13 - 13:33
Magnús Már Einarsson

Steven Gerrard gerir nýjan samning við Liverpool (Staðfest)

Steven Gerrard gerir nýjan samning við Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Steven Gerrard hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Liverpool. Fyrri samningur hans við félagið átti að renna út næsta sumar en nú er ljóst að Gerrard verður áfram á Anfield.
,,Ég held að allir viti hvað þetta þýðir fyrir mig,\" sagði Gerrard eftir að hann skrifaði undir.

,,Ég hef verið hér lengi og þetta er stór dagur fyrir mig og fjölskyldu mína. Þetta eru frábærar fréttir. Þetta þýðir að félagið kann að meta mig og vill hafa mig hér.\"

Hinn 33 ára gamli Gerrard hefur leikið í yfir 14 ár með aðalliði Liverpool og hann hefur verið fyrirliði frá árinu 2003.

Samtals hefur Gerrard skorað 159 mörk í 630 leikjum á ferli sínum með félaginu.

Heimild: Heimasíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.