Fotbolti.net
15.07.14 - 09:28
Elvar Geir Magnússon

Abnett kominn með leikheimild með Víkingi (Staðfest)

Abnett í leik með BÍ/Bolungarvík.

Abnett í leik með BÍ/Bolungarvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ívar Atli Sigurjónsson

Michael Abnett hefur fengið leikheimild með Víkingi Reykjavík en þessi 24 ára enski vængmaður samdi upphaflega við félagið í maí en fékk ekki keppnisleyfi áður en glugganum var lokað.

Ólafur Þórðarson sagðist í Pepsi-mörkunum gríðarlega ósáttur við KSÍ í því máli og sakaði sambandið um að hafa ekki farið eftir alþjóðlegum félagaskiptareglum.
Abnett lék áður 40 deildar- og bikarleiki með BÍ/Bolungarvík frá 2011. Hann er uppalinn hjá Crystal Palace og var þá einnig á mála hjá Mansfield Town.

Víkingur hefur verið að gera góða hluti í Pepsi-deildinni og situr í fjórða sæti eftir sigur á Keflavík í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.