Fotbolti.net
15.07.14 - 18:32
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Antonio Conte hættur með Juventus (Staðfest)

Antonio Conte.

Antonio Conte.

Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte hefur yfirgefið Juventus eftir að hafa verið knattspyrnustjóri félagsins undanfarin fjögur ár.

Þetta var staðfest nú undir kvöld með tilkynningu frá Conte sem hann birti á Youtube.
Conte skilaði ítalska meistaratitilinum í hús þrjú síðustu tímabil og koma fregnirnar því mjög á óvart.

Það mun hafa verið niðurstaða beggja aðila að Conte yfirgæfi félagið eftir ósætti um framtíðarstefnu félagsins. Er málið talið hafa snúist um hvað félagið myndi gera varðandi kaup og sölur á leikmönnum.

Ekki er vitað á þessari stundu hver tekur við Juventus. Ítalskir fjölmiðlar hafa þó stokkið til og vilja sjá Conte sem arftaka Cesare Prandelli sem landsliðsþjálfara Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.