Fotbolti.net
15.07.14 - 13:15
Magnús Már Einarsson

Daryl Janmaat til Newcastle (Staðfest)

Janmaat í leik á HM.

Janmaat í leik á HM.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur keypt hægri bakvörðinn Daryl Janmaat frá Feyenoord.

Talið er að kaupverðið hljóði upp á sex milljónir punda en Janmaat stóðst læknisskoðun hjá Newcastle í gær og skrifaði í kjölfarið undir hjá félaginu.

Þessi 25 ára gamli leikmaður vakti athygli fyrir fína frammistöðu með Hollendingum á HM í Brasílíu.
Hjá Newcastle á hann að fylla skarð Mathieu Debuchy sem er á leið til Arsenal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.