Fotbolti.net
15.07.14 - 16:16
Hafliði Breiðfjörð

Diego Costa til Chelsea (Staðfest)

Diego Costa er orðinn leikmaður Chelsea.

Diego Costa er orðinn leikmaður Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea staðfesti í dag að Diego Costa sé genginn í raðir félagsins frá Atletico Madrid og hafi gert fimm ára samning.
Hann mun hefja æfingar með liðinu þegar það kemur saman í næstu viku.

Costa vakti mikla athygli með Atletico Madrid í vetur og átti stóran þátt í að liðið vann spænsku deildina í fyrsta sinn í 18 ár og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hann er 25 ára gamall.

,,Ég er mjög ánægður með að hafa samið við Chelsea,\" sagði Costa. Allir vita að þetta er stórt félag í mjög sterkri deild og ég er mjög spenntur fyrir því að byrja á Englandi með frábærum þjálfara og liðsfélögum. Eftir að hafa spilað við Chelsea á síðustu leiktíð þekki ég gæði hópsins sem ég geng til liðs við.\"

,,Ég vil þakka öllum hjá Atletico sem gerðu mig að þeim leikmanni sem ég er, þetta var ótrúlegur tími fyrir mig en núna byrja ég nýtt ævintýri og vonast til að vinna marga titla með Chelsea.\"

Costa sem er fæddur í Brasilíu hóf feril sinn með Braga í Portúgal í febrúar árið 2006. Hann var svo seldur til Atletico fyrir tímabilið 2006-2007 og lánaður þaðan aftur til Braga út tímabilið. Þar skoraði hann fyrsta mark sitt í UEFA Cup gegn Parma. Hann var síðar lánaður til Celta Vigo og Albacete og seldur til Real Valladolid árið 2009. Atletico hafði klásúlu í samningnum um að fá að kaupa hann aftur og gerði það svo fyrir tímabilið 2011-2012. Hann skoraði 64 mörk í 134 leikjum með Atletico.

Heimild: Vefur Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.