15.07.14 - 08:53
Magnús Már Einarsson
Edin Beslija í KA (Staðfest)

Edin Beslija.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Edin Beslija.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA hefur fengið miðjumanninn Edin Beslija á láni frá KF.
Beslija er kominn með leikheimild með KA og getur leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn ÍA í 11. umferð 1. deildarinnar í kvöld.
Beslija var í lykilhlutverki hjá Víkjngi Ólafsvík frá 2010-2012 áður en hann gekk til liðs við Þór.
Í fyrra spilaði hann tuttugu leiki í Pepsi-deildinni með Þórsurum og skoraði eitt mark.
Í sumar hefur Beslija síðan skorað tvö mörk í tíu leikjum í 2. deildinni með KF.