Fotbolti.net
15.07.14 - 08:59
Elvar Geir Magnússon

Einar Már aftur til KV (Staðfest)

Einar Már í leik með Fram í Laugardalnum.

Einar Már í leik með Fram í Laugardalnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kantmaðurinn Einar Már Þórisson er kominn aftur í raðir KV. Hann yfirgaf félagið síðasta vetur og gekk í raðir Fram.
Einar Már er uppalinn í KR og varð hann m.a. íslands- og bikarmeistari með 2. flokki KR.

Hann náði ekki að vinna sér inn sæti í liði Fram og kom við sögu í aðeins tveimur leikjum í Pepsi-deildinni. Framarar eru í fallsæti þegar mótið er hálfnað.

Einar mun styrkja lið KV sem er á fínni siglingu í 1. deildinni og er komið upp í áttunda sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.