Fotbolti.net
15.07.14 - 17:21
Hafliði Breiðfjörð

Lazar Markovic í Liverpool (Staðfest)

Markovic eftir undirskriftina í dag.

Markovic eftir undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Facebook síða Liverpool

Liverpool hefur staðfest að Lazar Markovic sé genginn í raðir félagsins frá Benfica í Portúgal. Markovic getur spilað allar stöðurnar fremst á vellinum en hann skoraði sjö mörk í 49 leikjum í öllum keppnum með Benfica á síðustu leiktíð þegar liðið vann þrennuna heima og komst í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Markovic sem er serbneskur lék sinn fyrsta landsleik í febrúar árið 2012 og á fast sæti í landsliði þjóðar sinnar. Hann er fjórði leikmaðurinn sem Brendan Rodgers kaupir til félagsins í sumar, kemur í kjölfar Ricky Lambert, Adam Lallana og Emre Can.

,,Ég er virkilega ánægður með að hafa gengið til liðs við svona frábært félag,\" sagði Markovic eftir að hafa skrifað undir samning við félagið í dag.

,,Ég vona að ég geti staðist væntingar stuðnignsmanna, þjálfara, leikmanna og allra sem tengjast félaginu. Ég hef séð hvernig leikmenn félagið er með og hvernig stuðinngsmenirnir eru og hlakka til að fá að byrja að spila hérna.\"

Heimild: Vefur Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.