Fotbolti.net
15.07.14 - 08:49
Magnús Már Einarsson

Rolf Toft til Stjörnunnar (Staðfest)

Rolf Toft.

Rolf Toft.

Canon

Mynd: Stjarnan

Stjarnan hefur samið við danska framherjann Rolf Toft en hann kemur til félagsins frá dönsku meisturunum í Álaborg.

Rolf hefur spilað 25 leiki í dönsku úrvalsdeildinni á ferli sínum og skorað eitt mark en samkvæmt fréttatilkynningu frá Stjörnunni er hann duglegur og mjög áræðinn framherji.
Hann er uppalinn hjá FC Hjorring og hefur að undanförnu verið á láni hjá fyrstu deildar liðinu Vejle Boldklub.

,,Hann hefur gert samning út tímabilið og mun vonandi vera kominn með leikheimild fyrir leikinn á móti Fylki á sunnudaginn. Því miður getur hann ekki spilað með Stjörnunni á móti Motherwell. Hann mun samt sem áður hitta liðið í Glasgow og taka þátt í undirbúningnum fyrir evrópuleikinn og ferðast svo með liðinu til Íslands,\" segir í fréttatilkynningu frá Stjörnunni.

,,Stjarnan vill að lokum þakka Aalborg fyrir frábært samstarf og hröð og góð vinnubrögð af þeirra hálfu.\"

Rolf mun fylla skarð danska framherjans Jeppe Hansen sem skoraði sex mörk í níu leikjum með Stjörnunni í Pepsi-deildinni áður en hann samdi við Frederica í Danmörku á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.