Fotbolti.net
15.07.16 - 18:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Antonio Barragan til Middlesbrough (Staðfest)

Barragan er mættur í enska boltann

Barragan er mættur í enska boltann

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni, en nú er Antonio Barragan genginn í raðir liðsins.

Hinn 29 ára gamli Barragan kemur til Middlesbrough frá Valencia á Spáni. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Boro.
Barragan leikur í stöðu hægri bakvarðar og þekkir vel til á Englandi. Hann spilaði nefnilega með unglingaliðum Liverpool á sínum tíma

Middlesbrough eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni, en þeir hafa verið duglegir að styrkja sig í sumar. Barragan er sjötti leikmaðurinn sem semur við félagið í sumar.

Barragan er væntanlega ekki síðasta leikmaðurinn sem Middlesbrough bætir við sig í sumar, þar sem bæði Neven Subotic og fyrrum liðsfélagi hans hjá Valencia, Alvaro Negredo hafa verið sterklega orðaðir við félagið undanfarna daga.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.