Fotbolti.net
15.07.16 - 11:01
Magnús Már Einarsson

Cathrine Dyngvold í ÍA (Staðfest)

Úr leik hjá ÍA í sumar.

Úr leik hjá ÍA í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
ÍA hefur fengið liðsstyrk fyrir síðari hluta sumarsins í Pepsi-deild kvenna.

Norski framherjinn Cathrine Dyngvold hefur gengið til liðs við félagið.
ÍA hefur einungis skorað eitt mark í fyrstu átta leikjum sumarsins en Cathrine á að lífga upp á sóknarleikinn.

Cathrine raðaði inn mörkum með Klepp í byrjun meistaraflokksferilsins en hún hefur leikið með Kopparbergs/Göteborg í Svíþjóð undanfarin ár.

Hin 27 ára gamla Cathrine getur leikið sinn fyrsta leik með ÍA gegn KR á þriðjudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.