15.07.16 - 10:31
Magnús Már Einarsson
Danskur framherji í ÍBV (Staðfest)

Eyjamenn fá liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

ÍBV hefur samið við danska framherjann Soren Skals Andreasen en hann mun leika með liðinu út tímabilið.
„Soren hefur verið að æfa með liðinu undanfarna daga og náði að heilla þjálfara og forráðamenn ÍBV,\" segir í fréttatilkynningu frá ÍBV.
Soren er tvítugur að aldri og kemur úr unglingastarfinu í Esbjerg, líkt og samlandi hans Mikkel Maigard Jakobsen, sem hefur spilað með ÍBV í sumar.
ÍBV hefur verið í leit að framherja en félagið sýndi meðal annars Jeppe Hansen, leikmanni Stjörnunnar, áhuga. Jeppe er að öllum líkindum á leið í KR.
Eyjamenn hafa nú samið við Soren og hann á að hressa upp á sóknarleikinn en ÍBV hefur einungis skorað ellefu mörk í tíu leikjum í Pepsi-deildinni í sumar. Sjö af þessum mörkum komu í tveimur leikjum gegn ÍA og Fylki.