Fotbolti.net
15.07.16 - 18:30
Fótbolti.net

Frosti í Magna Grenivík (Staðfest)

Samningur handsalaður

Samningur handsalaður

Canon

Mynd: Magni Grenivík

Sóknarmaðurinn ungi Frosti Brynjólfsson er genginn til liðs við 2.deildarlið Magna á Grenivík.
Frosti kemur til Magna frá nágrannaliðinu KA. Hann er enn gjaldgengur í 3.flokki en hefur einnig leikið með 2.flokki KA í sumar.

Þessi 16 ára gamli framherji mun nú stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki og hjálpa Magnamönnum í baráttunni í 2.deildinni.

Frosti hefur verið í úrtakshópi U17 ára landsliðs Íslands að undanförnu.

Magnamenn eru í sjötta sæti 2.deildar og fá Ægi í heimsókn á morgun í elleftu umferð deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.