Fotbolti.net
15.07.16 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Hachim Mastour lánaður til PEC Zwolle (Staðfest)

Mastour hér í leik með AC Milan

Mastour hér í leik með AC Milan

Canon

Mynd: Getty Images

Hachim Mastour, leikmaður AC Milan, var fyrir ekki svo löngu einn umtalaðasti fótboltamaður í heimi. Það má kannski líkja honum við Martin Ödegaard hjá Real Madrid, en rétt eins og hjá Ödegaard hefru áhuginn á Mastour farið dvínandi.
Hinn 18 ára gamli Mastour gerði tveggja ára lánssamning við Malaga árið 2015, en fyrr í sumar ákvað Malaga að nóg væri komið. Hann var sendur aftur til AC Milan og er nú kominn aftur í nýtt lið.

Það er búið að lána hann út komandi tímabil til PEC Zwolle í Hollandi og þar verður áhugavert að fylgjast með því hvernig honum gengur.

„PEC Zwolle hefur bætt nýjum leikmanni við hópinn,\" sagði í yfirlýsingu frá hollenska félaginu.

„Hachim Mastour kemur á láni frá AC Milan út þetta tímabil. Hinn 18 ára gamli framherji getur spilað á báðum köntunum og fyrir miðju.\"

Heimild: Heimasíða PEC Zwolle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.