15.07.16 - 10:24
Magnús Már Einarsson
Hannes Þór í Randers (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður Íslands, hefur gengið til liðs við danska félagið Randers.
Hannes kemur til Randers eftir eitt ár í herbúðum NEC Nijmegen í Hollandi.

Hannes sló í gegn með íslenska landsliðinu á EM og nokkur félög sýndu honum áhuga í kjölfarið.
Hinn 32 ára gamli Hannes hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við Randers en þar er Ólafur Kristjánsson þjálfari.
Hannes þekkir aðeins til hjá Randers því hann var á reynslu hjá félaginu árið 2012.
„Ég er ótrúlega spenntur að hefja nýjan kafla hjá Randers FC og ég tel þetta vera rétt skref á ferli mínum,\" sagði Hannes við heimasíðu Randers.
„Ég hef verið áður hér svo ég veit hvað félagið stendur fyrir og ég veit að bærinn verður góður fyrir fjölskyldu mína.\"
Danska úrvalsdeildin hefst á mánudag en þá mætir Randers liði Midtjylland.