Fotbolti.net
15.07.16 - 14:20
Magnús Már Einarsson

Jeppe Hansen í KR (Staðfest)

Jeppe Hansen í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: KR

KR hefur keypt danska framherjann Jeppe Hansen í sínar raðir frá Stjörnunni.

Jeppe gerði samning við KR í dag sem gildir út tímabilið 2017.

Jeppe fékk leyfi frá Stjörnunni til að ræða við önnur félög fyrr í þessari viku. Nokkur félög í Pepsi og Inkasso-deildinni sýndu Jeppe áhuga í kjölfarið. Þessi 27 ára gamli leikmaður ákvað hins vegar á endanum að semja við KR.
KR hefur skorað fæst mörk allra liða í Pepsi-deildinni í sumar eða átta talsins. Hólmbert Aron Friðjónsson og Morten Beck Andersen, framherjar liðsins, hafa ekki náð að skora í Pepsi-deildinni hingað til.

Jeppe kom fyrst til Stjörnunnar vorið 2014. Eftir dvöl hjá Frederica í Danmörku kom Jeppe aftur til Stjörnunnar í fyrra.

Jeppe skoraði átta mörk í Pepsi-deildinni í fyrra en í sumar hefur hann skorað tvö mörk í sjö leikjum.

Jeppe hefur hins vegar mikið mátt verma bekkinn í sumar en Guðjón Baldvinsson hefur verið á undan honum í röðinni.

Jeppe Hansen er gengin til liðs við KR og verður hjá okkur út tímabilið 2017 pic.twitter.com/K7GwGgmZ1f

— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) July 15, 2016

Takk fyrir okkur! #InnMedBoltann #fotboltinet pic.twitter.com/HADxoFGmkZ

— Stjarnan FC (@FCStjarnan) July 15, 2016

Thanks to @FCStjarnan for a wonderful time! Now its time for a new challenge in @KRreykjavik!

— Jeppe Hansen (@Jeppe29) July 15, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.