Fotbolti.net
15.07.19 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Allt bendir til þess að Pogba verði áfram hjá Man Utd

Allt bendir til þess að Pogba verði áfram hjá Man Utd
Canon

Mynd: Getty Images

Allt bendir til þess að Paul Pogba verði áfram í herbúðum Manchester United á komandi tímabili að sögn The Guardian.

Félagaskiptaglugginn lokar 8. ágúst og ekkert tilboð hefur ennþá komið í Pogba.

Pogba hefur sjálfur lýst yfir vilja til að fara annað en Manchester United vill fá í kringum 170 milljónir punda fyrir hann.

Real Madrid hefur sýnt Pogba áhuga en spænsku risarnir verðmeta leikmanninn á bilinu 100-120 milljónir punda.
Manchester United er í leit að miðjumanni en Ander Herrera er farinn til PSG og félagið vill ekki missa Pogba líka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.