Fotbolti.net
15.07.20 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Barcelona vill fá Sessegnon

Ryan Sessegnon.

Ryan Sessegnon.

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur spurst fyrir um Ryan Sessegnon, leikmann Tottenham, en Sky sports segir frá þessu.

Hinn tvítugi Sessegnon hefur verið á óskalista Barcelona síðan hann sló í gegn með Fulham.
Njósnarar Barcelona mættu reglulega á leiki Fulham á sínum tíma til að fylgjast með Sessegnon.

Sessegnon hefur byrjað ferilinn hjá Tottenham rólega en Barcelona hefur áhuga á að reyna að fá hann í sínar raðir.

Barcelona er tilbúið að láta Nelson Semedo eða Samuel Umtiti fara til Tottenham í skiptum. Barcelona er í samskiptum við Tottenham en félagið hefur einnig verið að skoða Tanguy Ndombele, miðjumann enska félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.