Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. júlí 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Walker: Skuldum Fernandinho og Silva að vinna Meistaradeildina
Kyle Walker.
Kyle Walker.
Mynd: Getty Images
Kyle Walker, hægri bakvörður Manchester City, segir að leikmenn liðsins vilji vinna Meistaradeildina fyrir David Silva og Fernandinho.

Silva og Fernandinho eru komnir á efri ár ferilsins og eru væntanlega báðir á förum frá City í sumar.

„Nokkrir leikmenn hér eru að klára ferilinn sinn, menn eins og David Silva og Fernandinho," sagði Walker.

„Þeir hafa ekki unnið Meistaradeildina og fyrir þessa leikmenn þá skuldum við þeim að vinna keppnina."

„Við skuldum félaginu þetta líka, það hefur sýnt stuðning við alla leikmenn til að hjálpa okkur að afreka það sem við höfum afrekað. Þetta er líka það sem við þurfum fyrir félagið."

Athugasemdir
banner
banner
banner