Tékkneski framherjinn Patrik Schick átti stórmót er Tékkland fór í 8-liða úrslit á EM alls staðar.
Schick endaði markahæstur ásamt Cristiano Ronaldo með fimm mörk og var eitt þessara marka Schick einstaklega glæsilegt.
Það kemur engum á óvart að það hafi verið valið sem flottasta mark mótsins af UEFA, enda skoraði Schick frá miðjuboganum þegar hann tók eftir að markvörður Skota var kominn af marklínunni.
Schick skoraði í fræknum sigri gegn Hollandi í 16-liða úrslitum og gerði svo eina mark Tékka er þeir duttu út gegn Dönum.
Sjáðu markið
Athugasemdir