Fotbolti.net
15.07.22 - 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Juventus búið að kaupa Cambiaso (Staðfest)

Lánaður til Bologna

Juventus búið að kaupa Cambiaso (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalska stórveldið Juventus er búið að festa kaup á ítalska bakverðinum Andrea Cambiaso frá Genoa.

Cambiaso leikur í vinstri bakverði og hefur strax verið lánaður út til Bologna þar sem hann mun leika á lánssamningi út tímabilið.

Þessi 22 ára Ítali, sem getur einnig leikið í hægri bakverði og sem varnartengiliður, gerði fimm ára samning við Juventus eftir að hafa komið upp í gegnum unglingastarf Genoa.

Cambiaso spilaði 26 leiki er Genoa féll úr Serie A en missti af hluta tímabilsins vegna meiðsla. Þar áður hafði hann leikið fyrir Empoli og Alessandria á lánssamningum.

Hann á fimm leiki að baki fyrir U21 landslið Ítala og borgar Juve rúmar 7 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.