Mahrez búinn að skrifa undir samning (Staðfest)

Mahrez var meðal bestu leikmanna Man City á síðustu leiktíð. Hann gæti verið áfram hjá félaginu til 34 ára aldurs.

Mynd: Getty Images

Mahrez var meðal bestu leikmanna Man City á síðustu leiktíð. Hann gæti verið áfram hjá félaginu til 34 ára aldurs.

Mynd: Getty Images
Alsírski kantmaðurinn Riyad Mahrez er búinn að skrifa undir samning við Manchester City.
Þessi samningur gildir næstu þrjú tímabilin og fær Mahrez þar tækifæri til að bæta titlum við safnið. Hann hefur unnið ensku úrvalsdeildina þrisvar, deildabikarinn þrisvar og FA bikarinn einu sinni sem leikmaður City auk þess að hafa fengið einn silfurpening úr Meistaradeild Evrópu. Þar áður var hann hjá Leicester og vann bæði Championship og úrvalsdeildina.
Þessi 31 árs gamli kantmaður hefur skorað 63 mörk í 189 leikjum á fjórum árum hjá City. Hann gerði 24 mörk í 47 leikjum á síðustu leiktíð auk þess að gefa 9 stoðsendingar.
Pep Guardiola hefur miklar mætur á Mahrez og er leikmanninum sýnt mikið traust með að bjóða honum þriggja ára samning þrátt fyrir hækkandi aldur.
„Ég er mjög ánægður með samninginn. Ég hef notið hverrar einustu mínútu hjá þessu ótrúlega félagi og er stoltur að vera partur af því," sagði Mahrez, sem bætti því við að hann er hungraður í enn fleiri titla.
🤩 @Mahrez22 🤩#ManCity pic.twitter.com/zEH2F912d8
— Manchester City (@ManCity) July 15, 2022
