Fotbolti.net
15.07.22 - 13:23
Elvar Geir Magnússon

Raphinha kynntur sem leikmaður Barcelona (Staðfest)

Raphinha á æfingasvæðinu.

Raphinha á æfingasvæðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur keypt brasilíska framherjann Raphinha frá Leeds United en kaupverðið gæti farið upp í 55 milljónir punda.

Þessi 25 ára leikmaður var formlega kynntur á æfingasvæði Börsunga í dag. Þar hélt hann boltanum á lofti eins og hefð er fyrir.
Raphinha kom til Leeds frá Rennes í Frakklandi fyrir 17 milljónir punda 2020 og lék 65 úrvalsdeildarleiki fyrir enska félagið; skoraði 17 mörk og átti 12 stoðsendingar.

Það verður hægara sagt en gert fyrir Leeds að fylla skarð hans.

Hann virtist vera á leið til Chelsea áður en Barcelona sýndi áhuga.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.