Ajax er búið að festa kaup á Jeppe Kjær, 16 ára framherja frá Danmörku sem gerði frábæra hluti með Horsens í sumar.
Kjær var meðal annars eftirsóttur af Southampton og Juventus en endaði að lokum hjá hollenska stórveldinu Ajax sem er frægt fyrir að ala upp knattspyrnumenn í heimsklassa.
Kjær er yngsti leikmaður í sögu efstu deildar danska boltans og er lykilmaður í U16 landsliði Dana. Hann á framtíðina fyrir sér og verður áhugavert að fylgjast með þróun hans á næstu árum.
Hann lagði upp þrjú mörk og skoraði eitt með Horsens í sumar, þrátt fyrir að koma aðeins við sögu í níu leikjum og nánast alltaf inn af bekknum.
Jeppe Kjær, 16, is the youngest player in the Danish Superliga ever. He already has 3 assists in only 133 minutes of play, he's playing at the youth Danish national team and has already been training with Southampton and Juventus. He's for sale this summer. from r/soccer
Athugasemdir