Fotbolti.net
15.08.21 - 08:45
Elvar Geir Magnússon

Diego Costa til Atletico Mineiro (Staðfest)

Kominn í toppliðið í brasilísku deildinni.

Kominn í toppliðið í brasilísku deildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Diego Costa, fyrrum sóknarmaður Atletico Madrid og Chelsea, er búinn að skrifa undir hjá brasilíska félaginu Atletico Mineiro en hann var átta mánuði án félags.

Spænski sóknarmaðurinn, sem er 32 ára, yfirgaf Atetico Madrid í desember þegar hann bað um riftun á samningi sínum. Hann var kominn aftarlega í goggunarröðina hjá spænska liðinu.
Atletico Mineiro er með fimm stiga forystu á toppi brasilísku A-deildarinnar.

Costa er fæddur og uppalinn í Brasilíu en ákvað að spila fyrir spænska landsliðið.

Hann vann tvo úrvalsdeildartitla með Chelsea en dvöl hans þar endaði á leiðinlegan hátt eftir að Antonio Conte sendi honum textaskilaboð um að hann væri ekki í áætlunum hans.

Costa var þá í Brasilíu og neitaði að snúa aftur til Chelsea þegar honum var skipað að æfia með varaliðinu. Hann var síðan seldur til Atletico Madrid.

Á Spáni lék hann 43 byrjunarliðsleiki í deildinni á þremur árum en meiðsli kom í veg fyrir það að hann spilaði meira. Hann skoraði aðeins tólf mörk og bað um að fá samningi sínum rift af persónulegum ástæðum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.