15.08.21 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dumfries til Inter (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hollenski bakvörðurinn Denzel Dumfries er genginn í raðir Inter Milan.
Það var nóg um að vera á skrifstofunni hjá Inter í gærkvöldi en Edin Dzeko gekk til liðs við félagið og aðeins nokkrum mínútum síðar var tilkynnt um að Dumfries væri einnig mættur.
Dumfries kemur til Inter frá PSV en kaupverðið er talið vera 15 milljónir evra. Hann skrifar undir fjögurra ára samning.
Dumfries er 25 ára gamall hægri bakvörður en hann sló í gegn með hollenska landsliðinu á EM í sumar. Hann hefur verið lykilmaður hjá PSV frá því hann kom til félagsins tímabilið 2018/19 frá Herenveen.